Mikil aukning í útflutning á ferskum heilum fiski

Landsamband smábátaeigenda segir umræðuna um útflutning á ferskum heilum fiski til vinnslu erlendis hafi vart farið fram hjá þeim sem fylgjast með málefnum sjávarútvegsins.  

Skoðun talna síðastliðins árs og 2019 á fimm tegundum; þorski, ýsu, ufsa, karfa og steinbít sýnir magnaukningu í þremur þeirra en í ýsu varð verulegur samdráttur og óverulegur í karfa.  Langmest var flutt út af þorski, en mest var aukning í ferskum heilum steinbít.  

Magn20202019Breyting
Þorskur16.219 Tonn9.212 Tonn76%
Ýsa6.573 Tonn8.477 Tonn-22%
Ufsi7.984 Tonn5.816 Tonn37%
Karfi13.776 Tonn14.201 Tonn-3%
Steinbítur5.607 Tonn2.722 Tonn106%
 50.158 Tonn40.430 Tonn24%

Útflutningsverðmæti þessa afla nam 17 milljörðum á árinu 2020 þar af þorskur 7,5 milljarðar.  

Á árinu 2019 voru sambærilegar tölur 11,9 milljarðar og 4 milljarðar. 

DEILA