Gyllir ÍS 261 er 45 ára 16. mars 2021

Gvendardagur er 16. mars. Þá lést Guðmundur góði Arason Hólabiskup árið 1237. Guðmundar- eða Gvendardagur varð messudagur í Hólabiskupsdæmi ári 1315 þegar bein hans voru tekin upp.

Mikil helgi var á Guðmundi meðan katólska entist þótt hann væri aldrei lýstur helgur maður opinberlega, og eimdi lengi eftir af dýrkun hans, einkum á norðanverðum Vestfjörðum þar sem heimildir eru um nokkurt tilhald á messudegi Guðmundar allt fram á 20. öld.

Sunnanlands var gert ráð fyrir veðrabrigðum til hins verra þennan dag eða Geirþrúðardag daginn eftir, og jafnvel talið ills viti ef það brást.

Á síðasta fjórðungi 20. aldar var á Flateyri horft til Gvendardags sem mikils happadags í Önundarfirði eftir að skuttogarinn Gyllir ÍS 261 kom í fyrsta sinn til Flateyrar á Gvendardegi 16. mars 1976. Það var Útgerðarfélag Flateyrar hf. sem átti Gylli en það félag var dótturfélag Hjálms hf. á Flateyri sem var stofnaður þann 22. september 1968.

Gyllir heitir nú Stefnir ÍS- 28 og er gerður út frá Ísafirði og er 45 ára í dag – 16. mars 2021.

Nafnið Hjálmur var samþykkt á stofnfundi Hjálms hf. eftir tillögu Eysteins G. Gíslasonar fyrrum kennara á Flateyri. Í greinargerð með tillögu sinni benti Eysteinn á að “Hjálmur” væri vörn mikilvægasta líkamshlutarins og fyrirtæki sem þetta væri slíkt hið sama fyrir byggðarlag eins og Flateyri og Önundarfjörð. Fyrir væru nöfn félaga á Flateyri í sama dúr svo sem “Verkalýðsfélagið Skjöldur” og “Kvenfélagið Brynja.” Þessi tillaga var samþykkt með lófaklappi þó ágæt tillaga að öðru nafn hafi legið fyrir stofnfundinum í upphafi frá fundarboðendum.

Skráð af Menningar Bakki.

DEILA