Framsókn: Halla Signý féll niður í 3. sæti

Stefán Vagn Stefánsson.

Talningu var að ljúka í póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Tíu aðilar gáfu kost á sér í póstkosningunni. Kosið var um fimm efstu sæti listans fyrir komandi alþingiskosningar. Á kjörskrá voru 1995. Kosningaþátttaka var 58 % Þau sem hlutu kosningu voru:

  1. Stefán Vagn Stefánsson, Skagafirði hlaut 580 atkvæði í fyrsta sæti.
  2. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarfirði hlaut 439 atkvæði í fyrsta og annað sæti.
  3. i Halla Signý Kristjánsdóttir, Önundarfirði hlaut 418 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti.
  4. Friðrik Már Sigurðsson,Húnavatnssýslu hlaut 526 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti.
  5. Iða Marsibil Jónsdóttir, Bíldudal hlaut 563 atkvæði í fyrsta til fimmta sæti.
DEILA