Fræðslumiðstöð: Grænn lífsstíll

Á námskeiði Fræðslumiðstöðvarinnar er farið yfir einföld en mikilvæg skref í áttina að grænum lífsstíl.

Sýnt er fram á hvað við getum gert sem einstaklingar og að hvert skref í rétta átt skiptir máli.

Kennarinn Emilía Borgþórsdóttir og hennar sex mann fjölskylda hefur undanfarin ár unnið markvisst að því að draga úr vistspori sínu. Neyslumynstur fjölskyldunnar hefur mikið breyst m.a. með því að nota minna, endurnýta og endurvinna.
Emilía hefur m.a tekið þátt í námskeiðum hjá Leyla Acaroglu sem rekur Unschool þar sem farið er í heildræna nálgun í að leysa flókin vandamál og knúið fram sjálfbærar og félagslegar breytingar.

Á námskeiðinu er fjallað um:
– Einföld fyrstu skref við innkaupin, endurvinnslu og skipulag
– Hvaða lausnir eru til að takmarka umbúðir?
– Ferðamáti – almenningssamgöngur og einkabíllinn.
– Hvað getum við lagað og lengt líftíma?
– Sjálfbærni og hringrásarhugsun.

Ávinningur þinn:
– Þú færð hugmyndir um fyrstu skrefin að lægra vistspori.
– Aukinn skilningur á umhverfisvænni lífsstíl.
– Tileinkar þér aukna vitund um þinn lífsstíl.

Skráning á vef Fræðslumiðstöðvar

DEILA