Viltu verða eldsmiður ?

Skráning er hafin á Eldsmíðanámskeið á Þingeyri.

Kennari er Róbert Daníel Kristjánsson og verður kennt í gömlu smiðjunni á Þingeyri.

Um er að ræða helgarnámskeið sem verður haldið helgina 27. febrúar- 28. febrúar 2020.

Verð aðeins 28.000.- krónur og er efni innifalið. Einnig verður boðið uppá víkingasúpuá laugardeginum.

Skráning er hafin í síma 891 7025 einnig er hægt að senda tölvupóst á komedia@komedia.is

Kennt verður eins og hér segir:
Laugardagur kennt frá 10.00 til 16.000.
Sunnudagur kennt frá 11.00 til 15.00

Svona útbúin/n er best að mæta:
með öryggisgleraugu, rúskinsvetlinga,og ekki vera í nælon né plastfatnaði, ullarföt frekar, eða vinnugalla

ef þið eigið leðursvuntu þá er það mjög gott

Það má koma með hugmyndir að vekefni en það þarf ekki.

Byggðasafn Vestfjarða er í samstarfi við Gíslastaði um námskeiðið og það er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða.

DEILA