Viðreisn : uppstilling í Norðvesturkjördæmi

Nýtt merki Viðreisnar.

Landshlutaráð Viðreisnar í Norðvesturkjördæmis ákvað á fundi sínum í vikunni að nota uppstillingu við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Uppstillinganefnd hefur þegar verið skipuð og er vinna hennar að hefjast.

Ákveðið hefur því verið að fara í uppstillingu í fimm kjördæmum af sex en ákvörðun um aðferð hefur ekki verið tekin í landshlutaráði Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.

Hvert landshlutaráð fyrir sig tekur ákvörðun um hvaða aðferð er beitt við skipan framboðslista, í samræmi við samþykktir Viðreisnar. Verði uppstilling fyrir valinu skal landshlutaráð skipa uppstillingarnefnd sem starfar samkvæmt reglum sem stjórn Viðreisnar setur. Framboðslistar verða bornir undir landshlutaráð og stjórn Viðreisnar til samþykktar. 

Viðreisn gætir fyllsta jafnréttis kynjanna og vill endurspegla fjölbreytni mannlífs í framboðslistum sínum. Stjórn Viðreisnar hefur ákveðið að auglýsa eftir áhugasömu fólki til að starfa með flokknum og taka sæti á listum hans. Þessar auglýsingar munu líta dagsins ljós á næstu dögum.

DEILA