Verja þarf landaðan afla fyrir fugli

Of algengt er að fugl komist óhindraður í óvarinn afla í fiskörum á bryggjum landsins.

Að gefnu tilefni vill Matvælastofnun benda á mikilvægi þess að við löndun úr veiðiskipum og við flutning á afla sé komið í veg fyrir að fiskurinn verði fyrir utanaðkomandi mengun svo sem fugladriti. 

Þetta krefst þess að kör séu lokuð og að flutningur sé í lokuðum ökutækjum.  Einnig er ástæða til að benda sérstaklega á að fiskur sem af slysni fellur úr kari á bryggjuna er ekki hæfur til manneldis.

Í veiðiflotann hafa nú bæst við strandveiðibátar. Strandveiðar eru stundaðar um allt land yfir sumarið og fer löndun fram á höfnum hringinn í kringum landið. 

Löndun á fiski yfir sumarið er því umfangsmikil og brýnt að tryggja viðeigandi hreinlæti og kælingu frá veiði og þar til fiskurinn fer á borð neytenda.

Eftirlitsmenn Matvælastofnunar hafa víða orðið varir við óhreinindi í fiskikörum. Einnig berast stofnuninni reglulega kvartanir frá sjómönnum og fiskkaupendum um óhrein og skemmd löndunarkör.

Kör sem notuð eru fyrir matvæli þurfa að vera hrein og er það eingöngu tryggt með hreinsun eftir hverja notkun. Jafnframt er óæskilegt að nota fiskikör fyrir annað en matvæli. Kör til annarra nota skal merkja sem slík og ekki nota aftur fyrir matvæli.

DEILA