Örplast í meltingarvegi makríls og kolmuna við Ísland

Anni Malinen

Fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 10:00, mun Anni Malinen verja meistaraprófsritgerð sína í haf- og strandsvæðastjórnun um örplast í meltingarvegi makríls og kolmuna við Ísland.

Meistaraprófsvörnin er opin almenningi en vegna samkomutakmarkana af völdum COVID-19 getur takmarkaður fjöldi sótt viðburðinn í Háskólasetrinu.

Vörnin verður einnig aðgengileg í streymi á netinu fyrir áhugasama á YouTube rás Háskólaseturs.

Ritgerðin ber titilinn „Microplastic ingestion by Atlantic mackerel and blue whiting in Icelandic waters.“

Leiðbeinendur eru Dr. Pernilla Carlsson, vísindakona við NIVA, norsku vatnarannsóknarstofnunina og kennari í meistaranáminu í haf- og strandsvæðastjórnun og Dr. Anna Ólafsdóttir, fiskifræðingur við Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna. Prófdómari er Dr. Ingeborg Hallanger, vísindakona í umhverfismengun við norsku heimskautastofnunina Norsk Polarinstitutt.

DEILA