Kundai Benyu til liðs við Vestra

Knattspyrnudeild Vestra hefur samið við sóknarmiðjumanninn Kundai Benyu um að leika með Vestra á komandi keppnistímabili.

Kundai, sem er 23 ára gamall, spilaði síðast hjá Wealdstone á Englandi, en hann er uppalinn hjá Ipswich, þar sem hann var 2011-2017. Þaðan hélt leiðin til Celtic í Skotlandi.

Til gamans má geta að Kundai hefur spilað fyrir Helsingborg, þar sem hann hitti fyrir Bolvíkinginn, Andra Rúna, en Andri segir að hann muni koma til með að styrkja liðið mikið.

Kundai er lýst sem teknískum, snöggum leikmanni.

DEILA