Ísafjarðarbær: Samningur við Kómedíuleikhúsið endurnýjaður

Elfar Logi Hannesson og Birgir Gunnarsson við undirritun samningsins.

10. febrúar var samstarfssamningur Ísafjarðarbæjar og Kómedíuleikhússins undirritaður, en bæjarstjórn staðfesti samninginn á fundi þann 4. febrúar.

Markmið samningsins er að efla og glæða áhuga bæjarbúa á leiklist og auðga menningarlíf í Ísafjarðarbæ, auk þess að styrkja eina atvinnuleikhús Vestfjarða.

Samningurinn er til tveggja ára og er endurnýjun á fyrri samningi milli sveitarfélagsins og leikhússins sem var í gildi 2019 og 2020.

Samkvæmt upplýsingum frá leikhússtjóranum, Elfari Loga Hannessyni, er næst á dagskrá hjá leikhúsinu að setja á svið brúðuleikrit um Bakkabræður, auk þess sem sýningarnar um Gísla frá Uppsölum og nafna hans Súrsson verða aftur í boði í sumar.

DEILA