Hörmungarkviss, hungursneið og námskeið í sjálfsvorkunn

Hörmungardagar verða haldnir hræðilegir á Hólmavík, og á netinu, 26.-28. febrúar árið 2021. Hörmungardagar á Hólmavík eru hátíð alls þess ömurlega, ómögulega, neikvæða og niðurdrepandi í heiminum á versta tíma ársins, í dimmum og köldum febrúar segir í fréttatilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar.

Dagskráin í ár mun einkennast af zoom-viðburðum og netviðburðum og verða margir aðgengilegir á síðunni Hörmungardagar á Facebook. Hátíðin hræðilega er því aðgengileg öllum, hver sem búseta þeirra er.

Meðal viðburða eru:

  • Kaffi og hungursneið ásamt Draugagöngu í Sauðfjársetrinu
  • Hörmungarkviss hjá Galdrasýningunni á Ströndum – á netinu
  • Upplestur á margvíslegum Strandahörmungum – á netinu
  • Námskeið í sjálfsvorkunn með Svavari Knúti

Um Hörmungardaga

Mörgum þótti síðasta ár lengi að líða, hörmungar, pestir og margvísleg ótíðindi hafa einkennt síðustu misseri. Í fréttatímum dynja á fólki allskonar upplýsingar um yfirvofandi ógnir og hamfarir og hörmungar á heimsvísu. Á þessum erfiðu tímum er hátíðin Hörmungadagar kærkomin tilbreyting. Þessi gleðskapur, þar sem ýmislegt frekar erfitt, dapurlegt og jafnvel bragðvont hefur verið á dagskránni verður því haldin á Ströndum helgina 25.-28. febrúar. Þar verður tekist á við margvísleg vandamál og áskoranir með tveimur hrútshornum. Í fyrra greindist fyrsta Covid-smitið á Íslandi í lok Hörmungadaga, en nú er ætlunin að ljúka hátíðinni með því að peppa liðið upp!

Dagskrá:

Föstudagur 26. feb.

12:15 Hvatastöðin stendur fyrir Dansað gegn ofbeldi í Hnyðju að fyrirmynd UN Women – öll velkomin

12:30-15:00 Opið hús í Þróunarsetrinu á Hólmavík – Höfðagötu 3

13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Strandahörmungum í beinni á vefnum

19:00 Draugaganga út í Orrustutanga frá Sauðfjársetrinu (ekki fyrir mjög ung börn og viðkvæmar sálir)

21:00 Hörmungarkviss á vegum Galdrasýningarinnar, Arnar S. Jónsson sér um spurningarnar á Zoom og Kahoot!

Laugardagur 27. feb.

11:00-19:00 Hörmungarganga upp á Sjónvarpshæð. Við hvetjum fólk til að fara í sína eigin hörmungargöngu upp á Sjónvarpshæð en á toppnum verður kassi þar sem hægt er að sækja sér verðlaun með þemanu hörmungar sem finnast á hverju heimili

12:00-19:00 Hörmulegt ljósmyndamaraþon á vegum Augnabliksins – ljósmyndaklúbbs Arnkötlu

13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Stranda hörmungum á vefnum

14:00 Námskeið í sjálfsvorkunn með Svavari Knúti í Hnyðju

15:00 Kyrrðarkraftur kynnir verkfæri gegn streituhörmungum í Hnyðju

18:00 Leiksýning frá Leikfélagi Hólmavíkur um galdramál og Klemus – á vefnum

20:00 Hörmungartónleikar með Svavari Knúti á Galdrasýningunni, verð 2000 kr.

Sunnudagur 28. feb.

11:00-19:00 Hörmungarganga upp á Sjónvarpshæð. Við hvetjum fólk til að fara í sína eigin hörmungargöngu upp á Sjónvarpshæð en á toppnum verður kassi þar sem hægt er að sækja sér verðlaun með þemanu hörmungar sem finnast á hverju heimili

12:00-19:00 Hörmulegt ljósmyndamaraþon á vegum Augnabliksins – ljósmyndaklúbbs Arnkötlu

13:00 Rannsóknasetur HÍ á Ströndum með upplestur á margvíslegum Stranda hörmungum á vefnum

14:00 Hörmungarkaffi á Sauðfjársetrinu. Á boðstólnum verður Hungursneið og kaffi. Dagrún Ósk þjóðfræðingur segir frá Plágum og pestum fyrr og nú og Dúllurnar og Anna Björg verða með tónlistaratriði, svokallað hörmungarkvein – bæði í raunheimum og streymi.

18:00 Strandapepp í lok Hörmungadaga með Pálmari Ragnarssyni fyrirlesara – á vefnum

Það er félagið Arnkatla – lista- og menningarfélag sem stendur fyrir Hörmungadögum, ásamt góðum samstarfsaðilum í héraðinu. Frumkvæðissjóður Sterkra Stranda styður við uppátækið. Þetta er í fimmta sinn sem Hörmungardagar eru haldnir.  facebook.com/hormungardagar

DEILA