Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða

Stjórn Skjaldborgar við afhendingu Eyrarrósarinnar 2020. Frá vinstri: Karna Sigurðardóttir, Kristín Andrea Þórðardóttir í miðið og Helga Rakel Rafnsdóttir fremst.

Vestfjarðastofa hefur veitt viðurkenningar fyrir fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða úr hópi þeirra verkefna sem hlutu styrk úr sjóðnum árið 2020.

Sýslið

Í flokki nýsköpunarverkefna var það Sýslið, miðstöð skapandi greina á Hólmavík sem hlýtur viðurkenninguna Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða árið 2020.

Aðstandur Sýslsins á Hólmavík. Frá vinstri: Bára Melsted, Silja Ástudóttir, Ásta Þórisdóttir og Svanur Kristjánsson.

Hugmyndin með Sýslinu er að stofnsetja miðstöð skapandi greina í gamla sýslumannshúsinu á Hólmavík. Sýslið – Verkstöð er klæðskerasaumuð lausn sem býður upp á fjölþætta þjónustu sem hefur skort á svæðinu. Sýslið – Verkstöð verður rekið sem einkahlutafélag Ástu Þórisdóttur og Svans Kristjánssonar sem eru eigendur og íbúar hússins. Verkefnið getur haft mikil jákvæð áhrif á skapandi starf á svæðinu með fjölbreytilegri og  vel útbúinni aðstöðu og einnig með gestadvöl hönnuða og listamanna sem munu auðga starfsemina og menningarlíf á svæðinu með sýningum og viðburðum.

Sýslið er að einnig að vinna að vefnum www.strandir.is sem fer í loftið innan skamms.

Skjaldborg

Á sviði menningar hlýtur heimildahátíðin Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda viðurkenninguna Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs 2020. Skjaldborg hefur verið haldin síðan árið 2007. Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir, skoðar heimildamyndagerð á heimsvísu og skapar umræðu- og þróunarvettvang fyrir verkefni, leikstjóra og áhugafólk á Íslandi. Hátíðin er eini sérhæfði vettvangurinn fyrir íslenskar heimildamyndir hér á landi og má þess vegna segja að Skjaldborgarbíó á Patreksfirði sé orðið heimili íslenskra heimildamynda enda hjálpar umhverfið og fólkið á staðnum við að skapa aðstæður sem mynda einstaka stemningu og samveru sem verður til á hátíðinni.

Skjaldborgarskrúðgöngunni á lokakvöldinu. Kristín Andrea í broddi fylkingar. Ljósmynd: Hrund Atladóttir.

Það krefst mikils undirbúnings og góðrar skipulagningar að halda hátíð á borð við  Skjaldborg. Vegna Covid reyndist ekki unnt að halda hátíðina á Patreksfirði á árinu 2020, henni var frestað í tvígang og þrautalendingin var að halda hátíðina í Bíó Paradís í Reykjavík. Tengslin við Patreksfjörð eru þó sterk og verið er að skipuleggja að koma með allar helstu myndir hátíðarinnar og sýna á Patreksfirði á árinu. Þá munu leikstjórar sitja fyrir svörum að sýningum loknum.

Skjaldborg er handhafi Eyrarrósarinnar 2020. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefnum utan höfuðborgarsvæðisins við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

DEILA