Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða

Skjaldborgarskrúðgangan á lokakvöldinu. Ljósmynd: Hrund Atladóttir

Vestfjarðastofa hefur veitt viðurkenningar fyrir fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða úr hópi þeirra verkefna sem hlutu styrk úr sjóðnum árið 2020.

Í flokki nýsköpunarverkefna var það Sýslið, miðstöð skapandi greina á Hólmavík sem hlýtur viðurkenninguna Fyrirmyndarverkefni Uppbyggingarsjóðs Vestfjarða árið 2020.

Hugmyndin með Sýslinu er að stofnsetja miðstöð skapandi greina í gamla sýslumannshúsinu á Hólmavík. Sýslið – Verkstöð er klæðskerasaumuð lausn sem býður upp á fjölþætta þjónustu sem hefur skort á svæðinu. Sýslið – Verkstöð verður rekið sem einkahlutafélag Ástu Þórisdóttur og Svans Kristjánssonar sem eru eigendur og íbúar hússins. Verkefnið getur haft mikil jákvæð áhrif á skapandi starf á svæðinu með fjölbreytilegri og  vel útbúinni aðstöðu og einnig með gestadvöl hönnuða og listamanna sem munu auðga starfsemina og menningarlíf á svæðinu með sýningum og viðburðum.

Sýslið er að einnig að finna að vefnum www.strandir.is sem fer í loftið innan skamms.

Á sviði menningar hlýtur heimildahátíðin Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda

Skjaldborg hefur haldin síðan árið 2007. Skjaldborg frumsýnir íslenskar heimildamyndir, skoðar heimildamyndagerð á heimsvísu og skapar umræðu- og þróunarvettvang fyrir verkefni, leikstjóra og áhugafólk á Íslandi. Hátíðin er eini sérhæfði vettvangurinn fyrir íslenskar heimildamyndir hér á landi og má þess vegna segja að Skjaldborgarbíó á Patreksfirði sé orðið heimili íslenskra heimildamynda enda hjálpar umhverfið og fólkið á staðnum við að skapa aðstæður sem mynda einstaka stemningu og samveru sem verður til á hátíðinni.

DEILA