Atvinnutækifæri á Vestfjörðum

Samkvæmt því sem kemur fram í frétt Vestfjarðastofu er mikill uppgangur í Vestfirsku atvinnulífi og eru mörg fyrirtæki að auglýsa eftir starfskröftum.

Þau störf sem Vestfjarðastofa hefur upplýsingar um hafa flest verið auglýst opinberlega en einnig hafa upplýsingar um þær birst á miðlum eins og Facebook. 

Alltaf vantar fleiri góða rafvirkja á svæðið en Orkubú Vestfjarða vantar rafvirkja bæði á Ísafjörð og á Patreksfjörð.  Rafskaut á Ísafirði er einnig að leita eftir rafvirkja á svæðinu og það sama gildir um Pólinn á Ísafirði sem leitar að einum til tveimur rafvirkjum.  

Hampiðjan á Ísafirði er að leita eftir tveimur starfsmönnum, en mikil uppbygging hefur verið  hjá þeim undanfarið og er búist við að fleiri störf verði í boði hjá þeim á næstu mánuðum og árum. 

Koltra handverkshópur auglýsir eftir sumarstarfsmanni í upplýsingamiðstöð og handverkshús á Þingeyri.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er að auglýsa lausar stöður, Arctic Fish er að óska eftir starfsmönnum í sjóeldi og Terra óskar eftir umsjónarmanni í móttökustöð í Funa á Ísafirði.

Einnig er vert að nefna að Samband Íslenskra sveitarfélag er að auglýsa þrjú störf án staðsetningar. Þau eru: Forvarnarfulltrúi umsóknarfrestur til 15. mars. Verkefnastjórnun og vefumsjón umsóknarfrestur til 28. febrúar. Tæknistefna og tæknistrúktúr umsóknarfrestur til 28. febrúar.

Ferðamálastofa hefur einnig auglýst starf án staðsetningar við textaskrif og vinnslu á efni inn á visiticeland.is 

Hér er alls ekki um tæmandi yfirlit að ræða yfir laus störf á svæðinu en ljóst er að í boði eru fjölbreytt störf víða á Vestfjörðum.  Heimasíður sveitarfélaganna hafa verið dugleg við að setja upplýsingar um laus störf á sínu svæði en meðal annars er Ísafjarðarbær með sér svæði á heimasíðu sinni undir laus störf sem vert að fylgjast með.

DEILA