Vitundarvakning Krafts

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, verður með vitundarvakningu og fjáröflunarherferð dagana 21. janúar til 4. febrúar. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á hversu marga krabbamein hefur áhrif á, selja húfur til styrktar félaginu og starfsemi þess sem og afla styrkja fyrir félagið.

Um 70 ungir einstaklingar greinast með krabbamein á hverju ári. Vilja samtökin vekja athygli á því að krabbamein snertir ekki einungis þann sem greinist með krabbamein heldur fjölmarga í kringum hann þar á meðal maka, foreldra, börn, vini, vandamenn og jafnvel vinnufélaga.

Í fréttatilkynningu frá Krafti kemur fram að til þess að styðja við starfsemi Krafts geti fólk gerst mánaðarlegir styrktaraðilar, sent inn staka styrki eða keypt íslenska „Lífið er núna“ húfu sem var framleidd fyrir átakið.

„Heiða Nikita hannaði húfuna fyrir okkur og er hún framleidd af Varma í samstarfi við Ístex. Okkur fannst ekkert annað koma til greina en að vera með íslenska hönnun og framleiðslu á þessum tímum og kemur húfan einstaklega vel út,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts . Húfan er til í svörtu og appelsínugulu og fæst í vefverslun Krafts, verslun og vefverslun Símans og í verslunum Geysis.

„Við hvetjum auk þess fólk til að deila reynslu sinni á samfélagsmiðlum um það hvernig krabbamein hefur haft áhrif á það og sýna þannig samstöðu og hversu marga krabbamein snertir. Það er til að mynda hægt að fara inn á vefsíðuna okkar www.lifidernuna.is og fylla þar út  form um hvernig krabbamein hefur haft áhrif á þig hvort sem þú ert faðir, móðir, vinkona, sonur o.s.frv. þeim upplýsingum geturðu svo deilt á Facebook með sérstakri mynd. Með því að því að deila sýnir þú samstöðu og færð sent til baka upplýsingar um þá þjónustu og stuðning sem gæti gagnast þér,“ segir Hulda að lokum.

 

 

DEILA