Vill sjá 30 til 50 þúsund tonna fiskeldi í Ísafjarðardjúpi

„Fiskeldið er nú þegar einn af burðarásum atvinnulífsins og svo verður í framtíðinni, það er engin spurning. Starfsemi fiskeldisfyrirtækja er að færast upp til norðanverðra Vestfjarða og þar verður starfsemi fyrirækjanna álíka öflug og á sunnanverðum Vestfjörðum.“

 

Þetta segir Daníel Jakobsson formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar í þættinum Landsbyggðum á N4, sem sýndur verður í kvöld. Hann segir að fiskeldið fyrir vestan hafi örugglega átt sinn þátt í því að verð á fasteignum hafi hækkað á undanförnum árum fyrir vestan.

 

„Við horfum til þess að fiskeldið í Ísafjarðardjúpi verði í framtíðinni 30 til 50 þúsund tonn, sem þýðir 30 til 50 milljarða í útflutningsverðmæti og það munar nú um minna á þessum tímum.“

 

  • Viðtalið við Daníel Jakobsson er á dagskrá klukkan 20:30 í kvöld.

 

DEILA