Vestri: fengu stóra vinninginn

Sérfræðingar Getraunaleiks Vestra náðu 13 réttum í getraunaleiknum 1×2 og var heildarvinningur kr 880.000.  Seðillinn kostaði kr. 61.500 þannig að hluthafar í pottinum fengu tæpa fimmtánföldum fyrir framlag sitt.  Hver þúsund króna hlutur fékk þannig kr. 14.500 í vinning.  Verulega góð ávöxtun.

Það er alltaf pláss fyrir fleiri í stóra potti, áhugasamir sendi póst á getraunir@vestri.is .

Þeir sem taka þátt í getraunaleiknum geta ráðið því að tilteknar tekjur af seldum miðum renni til þess félags þeir styðja og Vestri fær í þessu tilviki kærkomnar tekjur.

Í getraunaleiknum náðu HG menn 12 réttum og minnkuðu þannig bilið í Skúrverja, sitja nú í 2. sæti  einu stigi á eftir Team Skúrinn.  Nokkrar ellefur sáust einnig, ljómandi árangur.

Annars má sjá árangur keppenda og stöðuna í leiknum hér  Vorleikur er 17 vikna leikur, 14 bestu telja.

Næsti seðill er strembinn venju samkæmt, 5 leikir úr efstu deild og 8 úr þeirri næstu  Næsta seðil má finna hér.

Nefndin verður á sínum stað í Skúrnum á laugardaginn frá 12 – 13.30 að taka við röðum.

Minnum keppendur á að skila röðum inn tímanlega til að auðvelda vinnuna.  Enn er opið fyrir ný framlög í stóra pottinn, dragið endilega fleiri inn, ágætis vinningslíkur auk þess sem stór hluti af andvirði seldra raða rennur beint til Vestra.

Enski boltinn verður í beinni hjá Dóra, sjá hér á síðu Símans hvað verður í boði

 

DEILA