Styrkir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar 2021

Markmið verkefnisins er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.

Flytja þarf því hálfunna eða fullunna vöru 150 km eða lengra, hvort sem er á sjó, lofti eða landi, á markað eða að útflutningshöfn til að geta sótt um styrk.

Eitt af grunnskilyrðum þess að geta sótt um styrk er að viðkomandi sé annað hvort:

a) Einstaklingur/lögaðili sem skráður er í C-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar

b) Einstaklingur/lögaðili sem framleiðir með ræktun ávexti, blóm eða grænmeti og fullvinnunnur framleiðslu sína í söluhæfar umbúðir enda falli framleiðslan undir flokk 01.1, ræktun nytjajurta annarra en fjölærra, og/eða flokk 01.2, ræktun fjölærra nytjajurta, í A-bálki íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar.

Þann 1. febrúar nk. verður opnað fyrir styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar. Lögbundinn lokafrestur umsókna vegna flutningskostnaðar árið 2020 er 31. mars 2021. Athugið að ekki tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma. Skila þarf umsókn í gegnum umsóknargátt Byggðastofnun.

DEILA