Skákdagurinn í Grunnskólanum á Ísafirði

Þriðjudaginn 26. janúar var Skákdagurinn, en hann er tileinkaður Friðrik Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fyrrverandi forseta Alþjóða skáksambandsins.

Friðrik sem varð 86 ára þann dag var eitt sinn meðal bestu skákmanna heims og teflir enn reglulega og gefur af sér til yngri kynslóða.

Í tilefni dagsins var efnt til fjölteflis í Grunnskólanum á Ísafirði.

Smári Rafn Teitsson, skákkennari og umsjónarkennari, tefldi við rúmlega 40 nemendur úr 5. – 10. bekk.
Úrslitin þarf vart að ræða, en nemendur stóðu sig vel og létu nokkrir hafa aðeins fyrir sér.

Í vetur kennir Smári Rafn skák bæði í vali á miðstigi og unglingastigi og hefur hann vakið upp áhuga, sérstaklega á miðstigi.

Skákin er holl hugaríþrótt sem þjálfar rökhugsun og eykur sköpunargáfuna.

DEILA