Ráðstöfunarfé nýtt í björgunarbát fyrir Flateyri

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu dómsmálaráðherra um að nýta ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar til að leigja bát fyrir björgunarsveitina á Flateyri út árið 2021.

Í greinargerð og tillögum aðgerðarhóps í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri sem gefin var út 2. mars 2020 var meðal annars lagt til að ríkið fjármagni kaup á björgunarbát fyrir Flateyri og rekstur hans til 5 ára.

Í fjárlögum var ekki gert ráð fyrir fé til kaupa á slíkum báti fyrir Flateyri.

Björgunarsveitin á Flateyri er með frekar nýlegan björgunarbát sem er harðbotnabátur en hann er ekki yfirbyggður og hentar því ekki til sjúkraflutninga þegar landleiðin lokast.

Í desember síðastliðnum var tekin ákvörðun um að finna tímabundna lausn fyrir árið 2021. Ríkisstjórnin samþykkti að nýta ráðstöfunarfé sitt til þessarar tímabundnu lausnar.

Áætlaður kostnaður við leigu á hentugum báti er um fjórar milljónir króna.

DEILA