Netarall 2021 – auglýst er eftir bátum

Ljósm. Valur Bogason.

Ríkiskaup fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar óska eftir tilboðum í leigu á netabátum til verkefnisins „Stofnmæling hrygningarþorsks með þorskanetum – Netarall 2021.“

Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru lögð net á um 300 stöðvum og fara leiðangrar yfirleitt fram í apríl og reynt er að miða upphaf leiðangra við dagsetningu sem næst 1. apríl.

Markmið rannsóknanna er að safna upplýsingum um kynþroska, aldur, lengd og þyngd þorsks á helstu hrygningarsvæðum.

Einnig að meta árlega magn kynþroska þorsks er fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.

DEILA