Kynna vatnsveitustyrki fyrir lögbýli

Ekki þarf lengur að sjóða vatn á Hólmavík.

Mánudaginn 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum.

Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á vef Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.

Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni: Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd, staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun, teikningar sé um byggingar að ræða og umsögn viðkomandi sveitarstjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitarstjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum.

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa. MAST vekur athygli á að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku ekki framkvæmdum þurfa að sækja um aftur.

DEILA