Ísafjörður: grjótvörn við Norðurtanga 166 – 330 m.kr.

Horft að Fjarðarstræti af sjó. Mynd: isafjordur.is

Birt hefur verið kostnaðaráætlun við gerð á grjótvörn frá Norðurtanga, sem gætu leitt til landfyllinga norðan Fjarðarstrætis. Bæjarráð ‘isafjarðarbæjar samþykkti í lok nóvember síðasta árs tillögu frá Marzellíusi Sveinbjörnssyni og Daníel Jakobssyni  að skoða þennan möguleika.

Í minnisblaði sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs er lagt mat á kostnaðinn. Reiknaðir eru tveir kostir.

Fyrri kosturinn er n vegna 100 m garðs út frá Norðurtanga og 550 metra samsíða Fjarðarstræti.

Áætlað magn af sprengdu efni eru 43000 rúmmetrar í fyrirstöðugarð/sjóvarnir. Áætlaður kostnaður þ.e. efniskaup og vinna við fyrirstöðugarð, er 165.688.000 kr.

Landmótun svæðis eru áætlaðir 53.000 m².
Uppfylling miðast við að nýta það sem fellur til við uppdælingu efnis í Sundahöfn, eða um 250.000 m³ þannig að sá kostnaður sem til fellur er ekki reiknaður inn í heildarkostnað.
Sé uppdælt efni ekki nýtt, má gera ráð fyrir auknum kostnaði sem nemur 200.000.000 kr.
fyrir 250.000 m³ af efni í komandi framtíð.

Gróflega áætluð efnisþörf af uppdældu efni í sviðsmynd 1, er 200.000 -250.000 m³.

Í seinni kostinum er garður færður 100 m út frá Norðurtanga og 1000 m meðfram Fjarðarstræti og út í Krók, heildarkostnaður við fyrirstöðugarð er
þá 330.000.000 kr. Landmótun svæðis er 100.000 m² og áætluð efnisþörf þ.e.a.s. uppdæling efnis 400-500.000³. Áætlaður kostnaður er um 400.000.000 kr. Samanlagður kostnaður gæti þá orðið um 730 m.kr.

Í minnisblaðinu er bent á að benda á að ríkissjóður greiðir allt að 7/8 hluta af kostnaði við
undirbúning og framkvæmdir við sjóvarnir. Landeigendur og sveitafélög, sem hafa hag af
varnaraðgerðum á landi sínu, greiða minnst 1/8 hluta.

Ekki liggur fyrr hvort ríkið myndi samþykkja verkefnið sem sjóvörn.

Bæjarráðið  hvetur til áframhaldandi framgöngu þessa verkefnis og vísaði  því til skipulags- og mannvirkjanefndar.

 

DEILA