Ísafjarðarbær: umhverfisnefndin gerir athugasemdir við breyttar reglur í friðlandinu á Hornströndum

Höfn í Hornvík. Jörundur og Kálfatindur í baksýn - þ.e. Hornbjarg að vestanverðu. Mynd: Mats Wibe Lund.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd Ísafjarðarbæjar gerir sömu athugasemdir og bæjarráðið og skipulags- og mannvirkjanefnd  við tillögur Umhverfisstofnunar að breytingum á reglu sem gilir um kvikmyndatöku í friðlandinu á Hornströndum. Lagt er til að svokölluð regla 2 þrengist frá því sem nú er og að leyfi þurfi  fyrir kvikmyndatöku og drónaflugi innan friðlandsins  fyrir 30. mars ár hvert og auk þess verði fjöldi leyfa til myndatöku við greni í Hornvík takmarkaður við tvö leyfi á tímabilinu 1. maí -31. ágúst. Segir í umsögn nefndarinnar að þessi breyting sé of íþyngjandi og óskýr.

Óskar nefndin eftir samstarfi Umhverfisstofnunar og bæjarritara Ísafjarðarbæjar við útfærslu á reglu nr. 2.

Óheimilt að tjalda til einnar nætur

Þá gerir umhverfis- og framkvæmdanefndin athugasemd við þá breytingu að ekki sé lengur heimilt lengur að tjalda til einnar nætur í friðlandinu.

Má fljúga og lenda fyrir landeigendur

Loks gerir nefndin ekki athugasemd við áform um að breyta reglu um flug og lendingar í friðlandinu á þann veg að landeigendum  megi heimila lendingar á landi sínu þegar
um er að ræða ferðir á þeirra vegum vegna eftirlits og viðhalds.

DEILA