Hagstofan varar við svikapósti

Hér má sjá sýnishorn af þessum svikapósti.

Nokkrir aðilar hafa haft samband við Hagstofuna vegna undarlegra tölvupósta sem þeir hafa fengið og líta við fyrstu sýn út fyrir að koma frá Hagstofunni.

Um er að ræða svikapóst sem ætlað er að komast yfir upplýsingar um lykilorð og persónuupplýsingar.

Verið er að tilkynna málið til lögreglu og netöryggissveitar CERTÍS.

DEILA