Hæfnihringir – fyrir konur í fyrirtækjarekstri á landsbyggðinni

Hæfnihringir eru byggðir á aðferðafræði, sem kallast aðgerðanám, en það grundvallast á því að nota raunverulegar áskoranir, verkefni og tækifæri sem grunn fyrir lærdóm.

Markmiðið er að aðstoða frumkvöðlakonur við að komast yfir hindranir með því að styrkja hæfni og færni þeirra, veita stuðning í formi fræðslu og hagnýtra tækja til eflingar og hvatningar ásamt því að efla tengslanet þeirra. Hringjunum er stýrt af leiðbeinendum í gegnum Zoom, sem er gjaldfrjálst netforrit.

Deildu þínum áskorunum, verkefnum og tækifærum með öðrum konum og fáðu ráðleggingar á jafningjagrundvelli.

Vertu í mátulega krefjandi en samt öruggu umhverfi þar sem hugmyndir geta verið reyndar og þróaðar.

Stækkaðu tengslanet þitt með konum, sem eru í svipuðum sporum og þú.

Hæfnihringirnir eru samstarfsverkefni nokkurra landshlutasamtaka/atvinnuþróunarfélaga.

Fundirnir eru einu sinni í viku, í sex skipti.
Við tekur svo regluleg eftirfylgni á fundum og í lokuðum Facebook hóp.
Fyrsti fundurinn verður fyrstu vikuna í febrúar kl. 14:30 – 16:00.

Upplýsingar veita: Agnes Arnardóttir agnes@vestfirdir.is og Þórkatla Ólafsdóttir thorkatla@vestfirdir.is

DEILA