Framsókn: þingmaður og ráðherra kjördæmisins flytur sig til Reykjavíkur

Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að færa sig úr kjördæminu og bjóða sig fram í Reykjavík norður við næstu Alþingiskosningar.

Vill ná fram pólitískum breytingum

Í færslu á facebook síðu sinni segir Ásmundur Einar að það kunni að „virðast sérstök ákvörðun að fara úr því sem næst öruggu þingsæti í Norðvesturkjördæmi, þar sem Framsókn á sér langa og farsæla sögu, í framboð þar sem flokkurinn hefur glímt við ýmsar áskoranir í undanförnum kosningum.“ Hann segir að baki þessari ákvörðun liggi metnaður til að ná fram stórum pólitískum breytingum í íslensku samfélagi.

„ég ákvað í upphafi þessa kjörtímabils að leggja allt undir og berjast fyrir stórum kerfisbreytingum í málefnum barna og barnafjölskyldna, róttækum aðgerðum fyrir ungt og tekjulágt fólk á húsnæðismarkaði ásamt fleiri málum. Þessi vinna og þessar aðgerðir undirstrika mikilvægi þess að við breytum forgangsröðun í íslenskum stjórnmálum.
Nú finn ég innra með mér mikinn metnað til að fylgja eftir þessum stóru kerfisbreytingum en ekki hvað síst að á þessum grunni verði stigin miklu stærri og víðtækari skref í að tryggja aukin tækifæri fyrir alla í íslensku samfélagi. Með skýrri og róttækri framtíðarsýn, vinnusemi og samvinnu þá trúi ég því að Framsókn hafi alla möguleika á að verða leiðandi afl í þessu efni. Það gerist hins vegar ekki nema flokkurinn nái að styrkja sig í þéttbýli og þá sérstaklega í Reykjavík.“
Segir Ásmundur Einar þetta ástæðu þess „að ég er tilbúinn að leggja allt undir.“
Færslunni lýkur hann með þessum orðum til félaga sinna í Norðvesturkjördæmi:
„Við vini mína, stuðningsmenn og kjósendur Framsóknar í Norðvesturkjördæmi vil ég segja að þetta var mjög erfið ákvörðun. Það auðveldar hana hins vegar að hafa fengið að sjá og heyra af öllu því öfluga fólki sem er tilbúið til að starfa með Framsókn um allt Norðvesturkjördæmi. Nú hvet ég ykkur öll til að nýta tækifærið, stíga skrefið og gefa kost á ykkur til forystu í kjördæminu. Ykkar og okkar er framtíðin.“

 

DEILA