Er það satt að sum dýr tali mannamál á þrettándanum?

Samkvæmt þjóðtrúnni tala kýr mannamál á þrettándanum.

Samkvæmt þjóðtrúnni tala kýr mannamál á þrettándanum.

Þrettándinn er 6. janúar og er síðasti dagur jóla.

Hann hét upphaflega opinberunarhátíð og hefur verið tengdur ýmsum kristnum trúaratburðum, svo sem skírn Krists og Austurlandavitringunum.

Um þjóðtrú tengda þrettándanum gildir flest hið sama og um nýársnótt, meðal annars að selir fari úr hömum sínum, kirkjugarðar rísa, álfar flytjast búferlum og kýr tala mannamál.

Hættulegt gat verið að hlusta á tal kúnna því þær reyndu að æra þá sem það gerðu.

Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er meðal annars þessa sögn að finna:

Á nýársnótt verða margir hlutir undarlegir. Það er eitt að kýr mæla þá mannamál og tala saman. Einu sinni lá maður úti í fjósi og á nýársnótt til þess að heyra hvað kýrnar töluðu. Hann heyrir þá að ein kýrin segir: „Mál er að mæla (aðrir: mæra).“ Þá segir önnur: „Maður er í fjósi.“ „Hann skulum vér æra,“ segir þriðja kýrin. „Áður en kemur ljósið,“ segir hin fjórða. Frá þessu gat maðurinn sagt morguninn eftir, en ekki fleiru því kýrnar höfðu ært hann. (Jón Árnason. Íslenskar þjóðsögur og ævintýri I, 609)

Svar af Vísindavefnum.

DEILA