Dansæfingar þó svo að þorrablót falli niður

Allt frá árinu 1981 hafa foreldrar nemenda í 10.bekk haldið þorrablót fyrir árganginn, eða alls 40 sinnum.

Þessar skemmtanir hafa staðið upp úr hvað varðar glæsileika og skemmtanagildi.
Nemendur, foreldrar, ömmur og afar mæta gjarnan í sínu fínasta pússi og margir í þjóðbúningum, borða saman þorramat, njóta heimatilbúinna skemmtiatriða foreldra sem alltaf slá í gegn, syngja þjóðleg lög og dansa að lokum gömlu dansana upp á gamla mátann.

Starfsmenn skólans eru einnig boðnir á blótin og hafa þeir alltaf haft skemmtiatriði á dagskránni.

Því miður er ekki færi á að halda slíka skemmtun á bóndadaginn 22.janúar eins og áætlað var, vegna fjöldatakmarkana í þeirri reglugerð sem nú er í gildi til 28.febrúar n.k. vegna farsóttarinnar.

Þrátt fyrir það hafa 10.bekkingar hafið dansæfingar undir stjórn Sigurrósar Evu Friðþjófsdóttur, danskennara.

Eitt er víst að dansinn verður klár hjá krökkunum og gaman að sjá gleðina sem skein úr þeirra augum á dansæfingu á dögunum.

DEILA