Bolungavík: þrettándagleðin fellur niður

Á þrettánda dag jóla, sem er í dag,  er haldin hin árlega þrettándagleði Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar. Sveitarfélögin skiptast á að halda þrettándagleði og í ár ætti að halda  þrettándagleðina í Bolungarvík.

Á þrettándagleðina í Bolungarvík koma álfar og kóngafólk, prinsar og prinsessur, stallari, biskup og skratti, bændafólk, álfameyjar, ljósálfar og svartálfar, jólasveinar, púkar og Grýlu-börn og svo auðvitað Grýla sjálf með Leppalúða sinn.

Dans er stiginn og söngvar sungnir við hljóðfæraspil og þrettándabrennu svo sem vera ber á þrettándanum.

Löng hefð er fyrir því að þrettándagleðin endi á flugeldasýningu sem Björgunarsveitin Ernir í Bolungarvík stendur fyrir.

Að þessu sinni fellur þrettándagleðin niður vegna sóttvarnareglna.

 

DEILA