Bolungavík: Stækkun frystihússins gengur vel

Stækkun frystihúss Jakobs Valgeirs ehf. Mynd: Jón Steinar Guðmundsson.

Góður gangur er í stækkun frystihúss Jakobs Valgeirs ehf í Bolungavík og var flaggað í gær fyri því að búið er að reisa stálgrindina sem hýsir viðbygginguna. Stækkunin er 25 x 50 metrar.

Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri sagði í samtali við Bæjarins besta að stefnt væri að því að vinnsla gæti hafist í nýja húsnæðinu um páskana.  Vel gengur að reisa húsið en Jakob Valgeir sagði að tímafrekt væri að koma tveimur tveggja tonna lausfrystum fyrir.  Með þeim eykst frystigetan um 3 – 4 tonn á klst. Kostnaðurinn mun hlaupa á hundruðum milljónum króna.

GÓk húsasmíði  í Bolungavík og Vélsmiðjan Þristur á Ísafirði eru helstu verktakarnir en fleiri koma að eins og Vélsmiðjan Mjölnir og Sigurlaugur Baldursson.

 

 

DEILA