Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag hafa nokkur tilboð borist í Landsbankahúsið við Pólgötu á Ísafirði sem er til sölu.
Áform eru uppi um að flytja starfsemi útibús bankans í byggingu skammt frá núverandi stað, það er Hafnarstræti 19 þar sem Sparisjóður Vestfirðinga var áður.
Hús Landsbankas á Ísafirði er á fjórum hæðum; kjallari, tvær hæðir og ris. Grunnflötur er um 220 m2 en alls er húsið um 830 m2.
Afgreiðslusalur og aðstaða fyrir viðskiptavini var á 1. hæð en á 2. hæð var m.a. íbúð fyrir útibússtjóra. Í svip er bankahúsið mjög líkt byggingu Landsbankans á Selfossi og í Reykjavík.
Sem kunnugt er var húsið á Selfossi selt nýlega, enda hentar það ekki lengur starfsemi bankans. Sama mun vera uppi á teningnum á Ísafirði.