Auka ekki við veiðiráðgjöf úr loðnustofninum

Árni Friðriksson HF-200

Hafrannsóknastofnun hyggst ekki breyta þeirri loðnuráðgjöf sem stofnunin ákvað í lok síðasta árs, sem mælir með einungis 22 þúsund tonna veiði úr stofninum.

Eins og fram hefur komið í Bæjarins besta lauk fyrir helgi loðnuleit á fimm skipum.

Hafís náði yfir stóran hluta rannsóknasvæðisins og segir Hafró ljóst að mun minna magn mældist af loðnu en í desember síðastliðnum. „Verið er að vinna úr gögnum og stofnmat liggur ekki fyrir en engu að síður er orðið ljóst að ekki verði breyting á ráðgjöf sem byggði á mælingu í desember.“

Fyrirhugað er að endurtaka mælingar þegar aðstæður leyfa með tilliti til hafíss, veðurs og útbreiðslu loðnu.

Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson munu geta lagt í leiðangur með skömmum fyrirvara og í kjölfarið verður metin þörf á mögulegri aðkomu fleiri skipa.

DEILA