Valþjófsdalsvegur

Eldri myndin var tekin 1955 og þá er kominn þarna sæmilegur akvegur, byggður 1949. Yngri myndin var tekin í lok ágústmánaðar 2019.

Í sunnanverðum Önundarfirði liggur Valþjófsdalsvegur (625) um Ófæruhlíð á milli Hjarðardals og Valþjófsdals.

Er hún kennd við Dalsófæru, klettastalla sem ganga í sjó fram og voru áður illur farartálmi.

Haustið 1892 var svolítil hilla sprengd inn í bergið en yfir Ófæruna var þó aldrei fært með klifjaða baggahesta fyrr en akvegur var lagður árið 1949.

Gangandi menn komust hins vegar fyrir Ófærunefið þegar lægst var í sjó en sú leið var ekki fær með hesta nema á stórstraumsfjöru.

Heimildir um þennan veg eru í árbókum Ferðafélagsins, 1951 bls. 82 og 1999 bls. 324

DEILA