TF-GRO sótti veikan sjómann út af Horni

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gær vegna veikinda eins skipverja togskips sem statt var um 50 sjómílur norðaustur af Horni.

Skipstjóri skipsins hafði samband við stjórnstöð Gæslunnar síðdegis og óskaði eftir aðstoð.

TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli á fimmta tímanum og var komin að skipinu rúmri klukkustund síðar.

Vel gekk að hífa skipverjann um borð í þyrluna og um klukkan 18:00 var aðgerðum þyrlusveitar við skipið lokið.

Skipverjinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi en þar lenti þyrlan á áttunda tímanum í gærkvöldi.

DEILA