Sundlaugar opnaðar á ný

Sundlaugin í Bolungarvík

Sund­laug­ar lands­ins verða opnaðar að nýju í dag og ef­laust marg­ir sem hafa beðið þessa dags með óþreyju, en þær hafa verið lokaðar í rúmlega einn mánuð.

Það verða þó áfram fjöldatakmörk í gangi og fer fjöldinn eftir rekstrarleyfi viðkomandi sundstaðar þar sem þeim er heimilt að taka á móti 50% af þeim fjölda sem rekstrarleyfið segir til um. Þetta verður í gildi til 12. janúar 2021.

Sundlaugin í Bolungarvík opnaði í morgun fastagestum til mikillar ánægju.

Í Íþróttahúsinu hafa engar æfingar verið nema hjá yngri flokkum. Þar verður ekki breyting á nema að blakdeild Vestra getur hafið æfingar þar sem að Vestri leikur í efstu deild.

DEILA