Setti aldrei samflokksmann

Sigríður Andersen fyrrv dómsmálaráðherra hefur verið í eldlínunni í vikunni eftir að niðurstaða Evrópudómstólsins í Strassborg var kynnt. Þar var fundið að skipun dómara við Landsrétt og fengu ráðherrann fyrrv og Alþingi gula spjaldið fyrir ráðninguna.

Indriði á Skjaldfönn dró málsvörn Sigríðar  saman á sinn  hátt en einhverra hluta vegna  kallar hann vísuna öfugmælavísu:

 

Sigga öllum sóma ann
og síst vorn heiður skaðar.
Hún setti aldrei samflokksmann
í sæti nokkurs staðar.
DEILA