Jólalag Barnakórs Strandabyggðar 2020

Nú þegar minna er um samkomur er gott að hlusta á jólalag frá Hólmavík en barnakór Strandabyggðar hefur sett eitt nýtt jólalag á veraldarvefinn.

Jólalag Barnakórs Strandabyggðar 2020 var unnið í samstarfi við frábæra jólavini, sjálfa jólasveinana Stúf og Hurðaskelli.

Lagið er eftir Þorgeir Ástvaldsson og textinn eftir Bjartmar Guðlaugsson. Upptökur Reykjavíkurmegin annaðist Ásgeir Páll Ágústsson og Bragi Þór Valsson annaðist upptökur Hólmavíkurmegin, undirleik, kórstjórn, hljóðblöndun og klippingu myndbands.

Sérstakar þakkir fá Ásgeir Páll Ágústsson, Bjartmar Guðlaugsson, Christina van Deventer, Kvenfélagið Glæður á Hólmavík, Valur Þórðarson, Þorgeir Ástvaldsson og Þorsteinn Óli Viðarsson.​

https://youtu.be/d6DND5J92s4

DEILA