Jólakveðja Gísla Jóns til Landhelgisgæslunnar

Þegar varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skoðuðu feril björgunarskipsins Gísla Jóns frá Ísafirði blasti þessi stórskemmtilega mynd við. Áhöfnin á Gísla vildi senda öllum í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar jólakveðju með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Þetta skemmtilega framtak lýsir vel því frábæra samstarfi sem ríkir milli Landhelgisgæslu Íslands og Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir á vef Landhelgisgæslunnar , sem sendi bestu kveðjur til baka.

 

DEILA