Hefja loðnumælingar strax í upphafi árs

Hafrannsóknastofnun áformar að haldið verði til loðnumælinga 4. janúar, eða eins snemma og veður leyfir.

Mælingarnar verða framkvæmdar á rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Ásgrími Halldórssyni SF, Aðalsteini Jónssyni SU og grænlenska skipinu Polar Amaroq.

Um borð í öllum skipunum verða þrír starfsmenn Hafrannsóknastofnunar við að vakta bergmálstæki og vinna úr sýnum.

Áætlað er að yfirferðasvæðið, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, verði lítið eitt stærra en svæðið sem var farið yfir í desember og leiddi til veiðiráðgjafar upp á 22 þúsund tonn.

Vonast er til að hægt verði að ná yfir svæðið út af Vestfjörðum sem var að hluta til hulið hafís í desembermælingunni. Á áætlun er að farið verði aftur til mælinga í byrjun febrúar.

Nákvæm tímasetning og umfang þess leiðangurs mun m.a. ráðast af veðri, útbreiðslu loðnu og aðstæðum til mælinga, segir í tilkynningu frá Hafró.

DEILA