Gleðilega hátíð Vestfirðingar og aðrir landsmenn

Fréttavefurinn Bæjarins besta sendir lesendum sínum, auglýsendum og öllum velunnurum besta jóla- og nýárskveðjur með góðum óskum um gott og farsælt komandi ár.

Árið hefur að mörgu leyti verið Vestfirðingum í meginatriðum farsælt til lands og sjávar. Mikilvæg framfaramál hafa mjakast áfram í rétta átt og íbúum hefur fjölgað lítillega. En áfram þarf að róa fast svo Vestfirðir haldi í við aðra landshluta.

Á hinn bóginn hefur kórónafaraldurinn haft mikil áhrif á mannlíf á Vestfjörðum sem annars staðar á landinu. Hefur sú glíma reynt töluvert á þolrifin og mun enn um sinn verða stigin. En þar hillir á næsta ári undir farsæl endalok með tilkomu bóluefnis.

 

Fréttavakt verður á Bæjarins besta um hátíðisdagana og fréttir fluttar eftir atvikum.

Með hátíðarkveðjum

ritstjórn Bæjarins besta

DEILA