Fylgi Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins eykst

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,1%, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember.

Fylgi Samfylkingarinnar minnkaði um tæp þrjú prósentustig og mældist 13,8%, fylgi Framsóknarflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig og mældist 7,6% og fylgi Miðflokksins minnkaði einnig um rúmlega tvö prósentustig og mældist 7,0%.

Þá jókst fylgi Flokks fólksins um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingu og mældist nú 6,2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 50,0% og minnkaði um tæplega tvö prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 51,7%.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 27,1% og mældist 25,0% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 13,8% og mældist 14,3% í síðustu könnun.
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,8% og mældist 16,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,5% og mældist 8,4% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 7,6% og mældist 9,9% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 7,6% og mældist 7,5% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 7,0% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,2% og mældist 3,9% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,0% og mældist 4,0% í síðustu könnun.
Stuðningur við aðra mældist 2,3% samanlagt.

DEILA