Áhyggjur af vetrarþjónustu við Rauðasand

Rauðisandur.

Mjólkursamsalan hefur komið á framfæri ábendingum um ófullnægjandi vetrarþjónustu á Rauðasandsvegi, en fyrirtækið sækir mjólk yfir á Rauðasand.

Málið var til umræðu á fundi bæjarráðs Vesturbyggðar fyrir jólin og kynnt svör Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Vegagerðarinnar vegna kröfu um aukna vetrarþjónustu. Samkvæmt svörum ráðuneytisins og Vegagerðarinnar er ekki unnt að verða við beiðni Vesturbyggðar um aukna vetrarþjónustu þar sem vetrardagsumferð næsta tengivegar, Örlygshafnarvegar (612) er of lág, eða 75 bílar á sólarhring sem og að Rauðasandsvegur er skilgreindur sem héraðsvegur sem Vegagerðinni veitir ekki vetrarþjónustu á.

Bæjarráð Vesturbyggðar bókaði að það lýsti yfir þungum áhyggjum af lágu þjónustustigi á vetrarþjónustu á Rauðasandsvegi og áhrifum þess fyrir öryggi íbúa og atvinnulíf á svæðinu. „Vesturbyggð í góðu samstarfi við Vegagerðina mun áfram tryggja eftir fremsta megni helmingamokstur, m.a. á þeim dögum þar sem mjólkursöfnun fer fram“ segir í bókuninni.

DEILA