Tilboð opnuð í Bíldudalshöfn

Bíldudalshöfn.

Tilboð voru opnuð 3. nóvemberí byggingu grjótgarðs og lagningu útrásar í Bíldudalshöfn.

Verkið felst í fyllingu undir og gerð grjótgarðs, vegna landfyllingar austan við núverandi höfn í Bíldudal.

Verkið felst einnig í lagningu nýrrar útrásar fyrir fráveitu og tengingu inn á núverandi fráveitulögn ásamt útrásarbrunni.

Helstu magntölur:

. Fylling undir grjótgarð 15.000 m³.
· Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 14.500 m3.
· Endurnýting grjóts 4.500 m³
· Lagning um 180 m útrásar, í gegnum garð og svo með steyptum sökkum

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.

Lægsta tilboðið kom frá Allt í járnum á Tálknafirði rúmar 110 milljónir sem var um 7% yfir áætluðum verktakakostnaði.

DEILA