Tekjufallsstyrkir, lokunarstyrkir og á næstunni koma viðspyrnustyrkir

Fjármálaráðuneytið

Hægt verður að sækja um tekjufallsstyrki og framhald lokunarstyrkja hjá Skattinum um næstu mánaðamót, en Alþingi samþykkti í liðinni viku lög um aðgerðirnar sem hafa að markmiði að styðja fyrirtæki vegna áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins.

Tekjufallsstyrkir, sem eru nýtt úrræði, eru sérstaklega ætlaðir til að treysta rekstrargrundvöll fyrirtækja sem hafa orðið fyrir miklu tekjufalli vegna faraldursins og aðgerða til að hefta útbreiðslu hans.

Þeir gagnast sérstaklega smærri fyrirtækjum með 1-5 starfsmenn og einyrkjum. Undir úrræðið fellur t.d. menningar- og ferðatengd starfsemi en því er einnig ætlað að nýtast öðrum rekstraraðilum sem hafa m.a. þurft að sæta takmörkunum vegna sóttvarnaráðstafana án þess að hafa verið gert að loka. Úrræðið nær til tekjufalls sem varð frá vori til nóvembermánaðar (1. apríl – 31. október).

Tekjufallsstyrkirnir eru veittir fyrir allt að fimm stöðugildi á hvern rekstraraðila og tekur styrkfjárhæð mið af rekstrarkostnaði og tekjufalli.
Rekstraraðilar sem verða fyrir 40-70% tekjufalli geta átt rétt á styrk að fjárhæð 400 þús.kr. á mánuði á hvert stöðugildi, en sé tekjufallið 70-100% getur styrkur orðið 500 þús.kr. á hvert stöðugildi á mánuði. Hámarksstyrkur verður 17,5 m.kr. á rekstraraðila.

Framhald lokunarstyrkja var einnig samþykkt á Alþingi í síðustu viku, en lokunarstyrkir hafa verið veittir frá fyrstu bylgju faraldursins í vor. Úrræðið nær til þeirra sem er gert að loka eða stöðva starfsemi samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra. Þetta á til dæmis við um hárgreiðslustofur, krár, líkamsræktarstöðvar, nuddstofur, sjúkraþjálfun, skemmtistaði, snyrtistofur, húðflúrstofur, söfn, spilasali og sundlaugar.

Alþingi samþykkti einnig breytingu á lokunarstyrkjum sem felur í sér að þeir verða víkkaðir út og miðast ekki lengur við þrjá starfsmenn að hámarki auk þess sem þeir gilda um þær lokanir sem kann að koma til fram á mitt næsta ár.

Viðspyrnustyrkir lagðir fram á Alþingi á næstu dögum

Þá hyggst fjármála- og efnahagsráðherra á næstu dögum leggja fram frumvarp um nýtt úrræði, viðspyrnustyrki, sem gert er ráð fyrir að verði veittir í framhaldi af tekjufallstyrkjum og gildi fram á næsta ár.
Úrræðinu er ætlað tryggja að fyrirtæki sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna kórónaveirufaraldursins geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi á meðan áhrifa faraldursins gætir, varðveitt viðskiptasambönd og tryggt viðbúnað þegar úr rætist.

DEILA