Styrkir til verkefna og viðburða

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Samkvæmt úthlutunarreglum munu starfshópar skipaðir af ráðherrum meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir.

Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum.

Hver einstaki styrkur getur numið allt að 10% heildarupphæð úthlutana.

Haustið 2020 eru heildarupphæðir sem ráðherrar hafa til ráðstöfunar sem hér segir:

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra: 10.000.000
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra: 7.900.000

Umsóknum skal skila rafrænt á eyðublaðavef Stjórnarráðsins, www.minarsidur.stjr.is, í síðasta lagi 30. nóvember 2020

DEILA