Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar seldar

Þann 20.nóvember skrifuðu Sjóferðir ehf undir kaupsamning á tveimur bátum og bryggjuhúsi Sjóferða Hafsteins og Kiddýjar. Eigendur Sjóferða ehf eru þau Stígur Berg Sophusson og unnusta hans Henný Þrastardóttir. Sjóferðir ehf munu halda áfram áætlunarferðum á Hornstrandir og um djúp.

Stígur hefur unnið hjá Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar frá árinu 2006 þar sem hann byrjaði sem háseti en árið 2010 varð hann svo skipstjóri hjá fyrirtækinu.  Hann á sjálfur ættir að rekja til Hornvíkur og er vel kunnugur um svæðið.

Bátar Sjóferða ehf eru í góði standi og báðir búnir tveimur mjög nýlegum vélum sem tryggja öryggi farþegar enn frekar.

Sjóferðir tryggja það að ávallt séu tveir til þrír starfsmenn eru í hverri áhöfn til að stuðla að öryggi farþega.

 

Bátarnir eru misstórir, annars vegar er Ingólfur sem tekur 30 farþega. Hann er að auki með krana svo Ingólfur nýtist auk farþegaflutninga í þungaflutninga og vinnuferðir. Stærri báturinn, oft nefnd Drottningin, Guðrún Kristjáns, tekur allt að 48 farþega.

 

Áætlun fyrirtækisins fyrir Hornstrandir sumarið 2021 er í vinnslu en ljóst er að áætlun hefst 1.júní 2021 og síðasta ferð farin 31.ágúst. Hægt er að panta báta í sérferðir utan þess tímabils, auk þess sem hægt er að bæta við ferðum fyrir hópa eða auka stoppum í Grunnavík, Sléttu, Flæðareyri og Lónafirði ásamt öðrum stöðum ef um er beðið.

Allar ferðir hefjast á Ísafirði þar sem hægt er að stíga beint um borð en notast þarf við slöngubáta til að ferja fólk og farangur í og úr landi innan friðlandsins.

 

Fyrir sérferðir er hægt að hafa beint samband við Stíg Berg í síma 866-9650 eða senda póst á sjoferdir@sjoferdir.is

 

Að öðru leyti verður sama þjónusta veitt við bókanir og almennar upplýsingar á skrifstofu Vesturferða í síma 456-5111 eða tölvupóst á vesturferdir@vesturferdir.is

DEILA