Síminn dæmdur skaðabótaskyldur gagnvart Snerpu

Síminn var í lok október sl. dæmdur skaðabótaskyldur gagnvart Snerpu í dómsmáli sem á rætur sínar að rekja til ársins 2004 og lauk ekki fyrr en með sátt Samkeppniseftirlitsins við Símann árið 2013 þar sem kvörtun Snerpu ásamt öðrum útistandandi málum var lokið og þurfti Síminn að greiða 300 milljóna króna stjórnvaldssekt í kjölfarið.

Eins og tímalengd atburðarrásar gefur til kynna var málið afar flókið og tók það Samkeppniseftirlitið 9 ár í viðamikilli rannsókn að komast til botns í því. Þá tók við vinna við að meta tjónið og var viðskiptafræðingur fenginn til að gera greiningu á því tapi sem Snerpa hafði orðið fyrir vegna málsins og á síðari stigum fengnir tveir dómkvaddir matsmenn til verksins. Síminn hafnaði því ítrekað að hafa valdið Snerpu tjóni og hafnaði einnig ítrekað boðum um samningaviðræður til að ljúka málum utan dómssalar.

Í grunninn snéri kvörtunin því að Síminn hafnaði að selja Snerpu það sem kallast í dag línugjald á öðru en smásöluverði sem þýddi að Snerpa þurfti að ábyrgjast greiðslur netnotenda vegna notkunar á línukerfi Símans án nokkurrar framlegðar. Snerpu bárust hinsvegar fregnir af því að stærri fyrirtækjum byðist magnafsláttur af þessum gjöldum en ekki endursöluaðilum.

Einnig beitti Síminn stöðu sinni þannig að Snerpa varð af miklum fjölda viðskipta á uppbyggingartímabili DSL-þjónustu sem þó einungis fékkst bætt að hluta, bæði vegna fyrningarákvæða og þess að meta þurfti þurfti tjónið sem var afar flókið verk og naut Síminn vafa um umfang þess að hluta.

Síminn sekur um misnoktun á markaðsráðandi stöðu

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri frumniðurstöðu að Síminn hefði gerst sekur um misnotkun á markaðsráðandi stöðu en í sáttinni umtöluðu hafnaði Síminn einhliða allri sök vegna þessa. Þá komst Samkeppniseftirlitið einnig að þeirri niðurstöðu að brotin hafi snert mikilvæg svið viðskipta, umfang brotanna verið mikil, brotin verið ítrekuð og geti talist ,,mjög alvarleg“. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði með þessu brotið gegn Snerpu og dæmdi Snerpu skaðabætur.

Hluti málsins fyrndist

Vegna þess langa tíma sem málið tók í meðförum Samkeppniseftirlitsins og þess tíma sem tók dómkvadda matsmenn að meta tjónið fyrndist hluti málsins. Dómsorð var þó að stefnandi Snerpa hafi orðið fyrir tjóni vegna aðgerða stefnda á árunum 2005 til 2013.  Áfrýjunarfrestur er liðinn og því er þetta endanleg niðurstaða málsins.

DEILA