Ratsjáin: samstarfsverkefni í ferðaþjónustu

Ísafjarðardjúp og Vigur.

Landshlutasamtök sjö landsvæða á Íslandi, þar með talið á Vestfjörðum,  hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021.

Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu til að takast á við þær áskoranir sem tengjast ástandinu með því meðal annars að auka nýsköpunarhæfni, auka yfirsýn og getu til að þróa vörur og þjónustu.

Í fréttatilkynningu segir að á næstu mánuðum sé lykilatriði að halda fast um taumana, nýta sér þau úrræði sem í boði eru af hendi stjórnvalda ásamt því að nýta tímann til að efla nýsköpun, vöruþróun og stafræna ferla fyrirtækisins.

Ratsjáin mun hefjast með formlegum hætti í janúar 2021 og standa yfir í 16 vikur eða til 16.apríl. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020 og er umsóknareyðublað aðgengilegt á heimasíðu Íslenska ferðaklasans – http://www.icelandtourism.is/verkefni/ratsjain/

Þátttökugjald er 20.000 krónur á fyrirtæki.

Þátttakendur frá öllum landshlutum munu hittast á tveggja vikna fresti á sameiginlegum vinnustofum á netinu þar sem kafað verður í kjarna þeirra verkfæra sem fyrir valinu verða. Á milli sameiginlegu vinnustofanna er haldinn svæðisbundinn heimafundur sem er í umsjón landshlutanna sjálfra. Þar verður farið nánar yfir efnistök frá sameiginlegum fundi og unnið með sérstöðu hvers svæðis fyrir sig á þeirra forsendum.

Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið í samstarfi við RATA og tengiliði frá landshlutasamtökum sveitarfélaga á Austurlandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Vesturlandi, Reykjanesi og Suðurlandi.

Frá Dýrafirði.

 

DEILA