Matvælastofnun varar við neyslu á tilteknum framleiðslulotum af Til Hamingju Morgungulli og Til Hamingju Granóla frá Nathan og Olsen ehf.
Ólöglegt varnarefni (etýlen oxíð), sem bannað er að nota í matvælum, greindist í sesamfræjum sem notuð eru í framleiðslu á innkölluðu vörunum.
Fyrirtækið innkallar nú vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur:
Vörumerki: Til hamingju
Vöruheiti: Granóla Morgungull
Nettómagn: 450g
Best fyrir dagsetningar: 30.05.2021
Vörumerki: Til hamingju
Vöruheiti: Granóla
Nettómagn: 450g og 1kg
Best fyrir dagsetningar: 27.08.2021 og 01.09.2021
Framleiðandi Nathan & Olsen hf., Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Hlíðarkaup, Nettó, Melabúðin Krambúðin, Kjörbúðin, Iceland, Fjarðarkaup, Verslunin Kassinn, Kjöthöllin, Samkaup Strax, Kaskó, Smáalind/Fjölval, Pétursbúð, Rangá, Hjá Jóhönnu ehf, Verslunin Einar Ólafsson og Verslunin Borg.